Blogg gömlu
Nýtt blog
'ahugaverðar síður
12.01.2010 14:52:27 / Bommi

Ættartal

Ef þið viljið fá sent ættartal nýuppfært til skoðunar þá hafið samband í    bommi@simnet.is

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.01.2010 14:49:00 / Bommi

Ættarmót

Sælt verið fólkið nú stittist í ættarmótið okkar , sem verður 25 til 27 júní þettað árið.   Ég vona að þið sýnið áhuga og skrifið endilega her inn það er svo gaman..

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.03.2009 13:27:24 / Bommi

Nefndin

Þar sem tæknin er eitthvað að stríða mér ætla ég að setja nefndina her aftur ef þið viljið hafa samband við okkur:

Unnur María Hjálmarsdóttir  s: 462-5925  862-4231
bommi@simnet.is

Anna Björg Björnsdóttir      s: 462-2093

Arnar Símonarson             s: 466-3280   866-0035
arnarsim@simnet.is

Júlíus Baldursson              s:  466-3320   897-6055
juba@simnet.is

Snjólaug Brjánsdóttir         s: 462-7517    895-3874
snjolaug@akmennt.is

Halla Soffía Jónasdóttir      s: 587-0457    699-3457
hallaso@internet.is

Ég vona að þetta sé rett..  
 Það er verið að vinna í því að mín kynslóð fái disk með ættartölunni sem á eftir að uppfæra , ef það eru fleiri sem vilja disk þá er bara að hafa samband. 
Gaman væri að heyra í ykkur hér !!!! 

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.03.2009 15:11:40 / Bommi

Ættartala

Nú er eg búin að vera að dreifa bréfi frá nefndini og disk með ættartölunni, sém þarf að leiðrétta,,   til þeirra í Reykjavík sem eru að minni kynslóð.  Ef þið hin viljið fá svona disk þá getið þið fengið hann hjá mér.  Þið sem búið á mínum heimaslóððum fáið diskinn þegar ég slæðist norður aftur.  :$

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2009 15:39:23 / Bommi

Ættarmót



Elskulegu ættingjar nær og fjær !

 

Nú er undirbúningur hafin fyrir ættarmót afkomenda Jónínu Jónsdóttur og Júlíusar  Jóhanns Björnssonar  kend við Sunnuhvoli á Dalvík.

Búið er að panta Húsabakka í Svarfaðardal helgina 25.-27. júní árið 2010 .

 

Í undirbúningsnefnd fyrir þetta ættarmót 2010 eru :

    •  

    •  

Unnur María Hjálmarsdóttir         (Hjálmar Blomkvist)     S: 462-5925  862-4231 bommi@simnet.is

 

Anna  Björg Björnsdóttir                (Sigrún)                          S:  462-2093

Arnar Símonarson      (Kristín Aðalheiður) S: 466-3320 8660035 arnarsim@simnet.is

Júlíus Baldursson   (Baldur Þórir)               S:  466-3320  897-6055 

 juba@simnet.is

Snjólaug  Brjánsdóttir   (RagnheiðurHlíf)    S:462-7517   895-3874
  njolaug@akmennt.is">snjolaug@akmennt.is

Halla Soffía Jónasdóttir       (Hrefna)     S: 587-0457  699-3457
hallaso@internet.is

    •  

    • Hlutverk     ofangreindra aðila er að skipuleggja dagskrá, setja saman vinnuhópa, taka við skráningum, sjá um móttöku og fleira og fleira.     

    Hér sendu við ættartölu sem við vinsamlegast bið ykkur að leiðrétta og laga eftir þörfum.

    Gott væri að þið senduð  breytinguna annaðhvort í bréf-pósti á :

    Unnur María Hjálmarsdóttir

    Smárahlíð 22a

    603 Akureyri          eða á mail   bommi@simnet.is   

    Nú vantar okkur sjálboðaliða til að sjá um/skipuleggja eftirfarandi atriði :

    *     Matinn. (Leita tilboða og fleira)

    *     Merkingar á ættarmótinu. (Barmmerki)    

    *     Halda utan um skráningar.

    *     Halda utan um niðjatalið og búa til nýtt. (Gott fyrir þá sem eru flinkir á tölvu)

    *     Skemmtiatriði. (Öll erum við skemmtileg)

    *     Myndir. (Reyndar ætla Júlíus Jónasar og Ellert Júlíusson  að sjá um það !)

    *     Útbúa textablöð

    *     Stjórna söng. (Anton Angatýrsson?)

    *     Annað  ????

     

    Þið sem eru með tölvur og eruð á “Fésbók” getið farið inn á Sunnuhvolsætt – þar er hópur sem á í daglegum samskiptum..  Þar er búið að setja inn nokkrar myndir bæði gamlar og nýjar. Þar er auðveldlega hægt að kynnast og skiptast á upplýsingum og skoðunum – og fræðast.

    Einnig getum við notað  “ unga.blogcentral.is “  til að koma skilaboðum áleiðis.

     

                                                          Bestu kveðjur

                                                                                       Nefndin

                                             


    Þetta er bréf sem þið í minni kynslóð fáið og verðið að upplýsa afkomendur ykkar um. Einnig kem eg til með að senda það á þá í Feisbook sem eru vinir mínir og ættingjar.  Diskurinn sem talað er um fá þeir sömu . Á diskinum er ættartal okkar sem þarf að uppfæra. Ég reyni svo að setja her inn upplýsingar um gang mála og skrifi þið endilega athugasemdir við.
                                      Kveðja til ykkar allra


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2008 13:00:28 / Bommi

Ættarmót

Sunnuhvolsætt

´Já Ef guð lofar höldum við ættarmót árið 2010 . Nema einhver vilji skella á móti þegar á næsta ári.. Þessi frábæra ætt eru afkomendur Júlíusar og Jónínu sem kennd er við Sunnuhvol á Dalvík . Eg er þegar komin með ættarskrá en til þess að af þessu geti orðið verð eg að fá uppgefin mail hjá ykkur, svo eg geti haft samband. Nú þegar er eg komin með mail hjá Hlíbbu afkomendur og að sjálfsögðu Bomma slekti. Þið hin getið sent mer mail hjá ykkur og ykkar á       unnurmaria53@gmail.com    eða     bommi@simney.is     Þið megið líka tjá ykkur um hvernig ykkur líst á þetta . Látið heyra frá ykkur

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 14:32:14 / Bommi

Fekk þetta sent

Að búa til barn. !!!
 Það er ekki eitt einasta dónaorð í þessu og þetta er mjög fyndið.
Jónas og frú gátu ekki eignast barn svo þau ákváðu að fá sæðisgjafa til að koma og starta fjölskyldu. 
Daginn sem "sæðisgjafinn" átti að koma í heimsókn, kyssti Jónas konuna sína  bless og sagði  "jæja, elskan, ég er þá farinn í vinnuna, maðurinn kemur fljótlega."
Hálf tíma síðar, er fyrir tilviljun, barnaljósmyndar, staddur í hverfinu hennar og hringir á bjöllunni í þeirri vona að fá verkefni. 
Góðan daginn frú, sagði hann, ég er komin til að....... "Ó, þú þarft ekkert að útskýra sagði Jóna feimnislega, ég átti von á þér. 
Í alvöru, sagði ljósmyndarinn. Nú það er ánægjuleg, vissirðu að börn eru mín sérgrein?? Ja, það er nú akkúrat það sem við hjónin vorum að vonast eftir. 
Gjörðu svo vel og komdu inn og fáðu þér sæti. Eftir smástund sagði hún,vandræðalega, "hvar byrjum við?
 Láttu mig bara sjá um allt. Ég byrja yfirleitt í baðkarinu, svo á sófanum og loks nokkrar á rúminu.  Stundum er meira að segja stofugólfið heppilegast, það er hægt að teygja svo vel úr sér þar.
 "Baðkarið, stofugólfið, hugsaði Jóna, Engin undra að þetta gekk ekkert hjá okkur hjónum -  Já, frú mín góð, ég get ekki lofað fullkomnum árangri í hvert skipti, en ef við notum mismunandi stellingar  og ég skýt frá mismunandi sjónarhornum, þá þori ég að lofa að þú verður ánægð með útkomuna.
 Vá, það er aldeilis mikið sagði Jóna með andköfum. "Frú mín góð, í mínu starfi verður maður að gefa sér góðan tíma í hlutina.  Ég mundi gjarnan vilja skjótast í þetta en ég er viss um að þú yrðir ekki ánægð með útkomuna. 
Ætli maður kannist ekki við svoleiðis, tautað Jóna lágt". Ljósmyndarinn dró upp nokkur sýnishorn af barnamyndum og benti Jónu á árangurinn. "Mér tókst sérstaklega vel til með þessa tvíbura sagði ljósmyndarinn, eins og mamma þeirra var þó erfið".  "Var hún erfið, spurði Jóna ?" Ég er nú hræddur um það. Ég varð að fara með hana í lystigarðinn til að ná að ljúka verkinu vel.  Fólk safnaðist að og fylgdist með. "Fylgdist með? sagði Jóna og gapti af undrun" - og þetta tók í allt 3 tíma.  Móðirin hrópandi og kallandi allan tímann - ég gat varla einbeitt mér, svo þegar það byrjaði að dimma varð ég að gefa í,  en það var ekki fyrr en íkornarnir voru farnir að narta í græjurnar þá varð ég að hætta og ganga frá. Jóna hallaði sér fram og sagði "voru þeir í alvöru farnir að narta í .... græjurnar?
Þetta er alveg satt frú mín góð. "Jæja ef þú ert tilbúin þá ætla ég að gera þrífótinn klárann "ÞRÍFÓTINN???
 "Ó já, frú Jóna. ÉG verð að nota þrífót "to put my Canon on, It's much too big to be held in the hand very long."
 ÞAÐ STEINLEIÐ YFIR FRÚ JÓNU.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 22:47:23 / Bommi

Bloggara hitt


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.07.2008 00:00:58 / Bommi

Góð sú gamla

Snjöll sú gamla


 Einu sinni var gömul kona að ganga niður götu með tvo troðfulla ruslapoka.
 Lögreglumaður stóð þarna rétt hjá og tók eftir því að það var gat á öðrum  pokanum og 5000 kr seðlar flugu úr pokanum endrum og eins. eitthvað fannst  honum þetta dularfullt og gekk upp að konunni  'góðan daginn væna mín' sagði hann 'hefur þú tekið eftir því að það eru  5000 kr seðlar fjúkandi úr pokanum þínum?' konan stoppar og lítur bak við  sig og sér seðlana á víð og dreif um götuna 'Æ þakka þér fyrir væni minn, stundi í konunni 'Ég ætti nú að drífa mig í að taka þá upp' En þegar hún  ætlar að leggja af stað að týna upp seðlana stöðvar lögregluþjónninn hana  'Engan asa væna mín, hvernig stendur eiginlega á því að þú ert með fullann  ruslapoka af fimm þúsund köllum? varstu að ræna banka?' Gamla konan brosti  'nei það gerði ég nú ekki en það vill svo til að bak við garðinn minn er  stór fótboltavöllur og alltaf þegar mikilvæg mót eru í gangi að þá koma  oft ungir menn og míga í blómabeðin hjá mér svo ég tók upp á því að standa  þarna með garðklippurnar og segja '5000 kr. eða ég klippi hann af' 'jahá..
 þetta er áhugaverð hugmynd' sagði lögregluþjóninn hugsi '..en hvað ertu  með í hinum pokanum?'

 'Það eru ekki allir sem borga...'


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 12:21:51 / Bommi

óóó

Þetta fann eg á einni síðunni.

Maður nokkur þurfti að komast á karlaklósettið, en það var upptekið.
  Kona, sem þarna var stödd, tók eftir því að maðurinn gekk með  stuttum  skrefum og var með örvæntingarsvip á andlitinu.

 'Herra minn,' sagði hún, 'kvennaklósettið er laust og þú mátt nota það ef þú lofar að snerta engan takkanna sem eru á veggnum'.
  Maðurinn var alveg kominn í spreng og tilbúinn að lofa hverju sem  var  til að leysa málið.
  Þar sem hann sat - og leið nú svo miklu betur - fór hann að horfa á  takkana sem hann hafði lofað að snerta ekki.
Það voru 3 hvítir takkar merktir VV, HL og PP og svo var einn  rauður sem merktur var STT.

Hver myndi svo sem vita það þó hann snerti þessa takka?
 Hann stóðst ekki freistinguna.

Fyrst ýtti hann á VV. Volgt vatn úðaði mjúklega undirvagninn.
 Manninum leið voða vel. Svona lúxus var sko ekki á karlaklósettum.
 Í von um áframhaldandi sælu ýtti hann á HL takkann.
Hlýtt loft lék nú um neðri hæðina, honum til ómældrar ánægju.
 Nú gat ekkert stoppað manninn.
Hann ýtti á takkann merktan PP og nú birtist púðurkvesti sem  púðraði allt fíneríið.
Þvílíkur unaður!

 Maðurinn gat varla beðið eftir því að ýta á rauða takkann.
Hann hafði grun um að þar væri ekkert minna en alsælan. -------

Hann vissi að hann var á spítala strax og hann opnaði augun.
 Hjúkrunarkona var yfir honum, með glott á andlitinu.
 'Hvað skeði? Af hverju er ég hérna? Það síðasta sem ég man er að ég var á kvennaklósetti!'

 'Þú ýttir á einum of marga takka' svaraði hjúkrunarkonan brosandi.
  'Rauði takkinn, sem merktur er STT, er sjálfvirkur  túr-tappatogari.
  Tippið af þér er undir koddanum þínum'.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 11:24:26 / Bommi

Þannig er það

Mamma og pabbi sátu við sjónvarpið.

Mamma segir:  Ég er þreytt, og klukkan orðin margt.  Ég ætla að fara

uppí rúm.  Hún fór inn í eldhús og útbjó nesti fyrir börnin, tæmdi

poppkornsskálina, tók kjöt úr frysti fyrir næsta dag, gáði hvað væri

eftir af kornfleksinu í pakkanum, fyllti á sykurkarið, setti sykur og

skeiðar á borðið og gerði kaffikönnuna tilbúna.


Svo setti hún nokkur föt í þurrkarann, setti þvottavélina af stað,

straujaði eina skyrtu og festi eina tölu.  Hún tók saman dagblöðin sem

lágu á gólfinu.

Hún safnaði saman nokkrum leikföngum sem lágu á borðinu, og setti

símaskrána niðu í skúffu, svo vökvaði hún blómin, tók úr

uppþvottavélinni og hengdi eitt handlæði upp svo það myndi þorna.


Hún stoppaði við skrifborðið og skrifaði miða fyrir skólann, setti

peninga á borðið fyrir börnin og tók upp eina bók sem lá undir stól.

Hún skrifaði eitt afmæliskort til vinkonu sinnar, setti frímerki á.  Svo

skrifaði hún minnismiða og lagði við hliðina á dagbókinni sinni.


Svo fór hún að þvo sér, setti á sig næturkrem, burstaði tennurnar og

greiddi sér.

Pabbin hropaði úr stofunni; ég heltað þú værir að fara að sofa.

Já sagði hún og hellti vatni í hundadallinn, og setti köttinn út.  Gekk

úr skugga um að dyrnar væru læstar.  Loks kíkti hún á börnin og talaði

við eitt þeirra sem enn var að læra.  Í svefnherbergi sínu  stilltihún

vekjaraklukkuna, tók til föt fyrir morgundaginn, tók  rúmteppið af

rúminu.

Enn skrifaði hún 3 atriði á minnismiðann.

Á sama tíma slökti pabbinn á sjónvarpinu og sagði við sjálfan sig; nú

fer ég að sofa - og það gerði hann.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 11:19:46 / Bommi

Eldri dama gengur inn í Gull og Silfur á Laugavegi og fer að skoða í kring
um sig í rólegheitunum. 
 
Hún sér gríðarlega fallegt demantsarmband og gengur að sýningaborðinu 
til að skoða það nánar. 
 
Þegar hún svo beygir sig yfir borðið til að sjá betur, prumpar hún óvart. 
 
Hún fer mjög hjá sér og lítur vandræðaleg kringum sig til að athuga hvort 
nokkur hafi tekið eftir þessu litla slysi hennar og vonar jafnframt að það 
komi ekki einhver sölumaður akkúrat meðan lyktin svífur um hana. 
 
Hún snýr sér varlega við og til að fullkomna martröðina, stendur ekki bara 
sölumaður beint fyrir aftan hana !? 
 
Svellkaldur sölumaðurinn sýnir fullkomna fagmennsku þegar hann heilsar 
eldri dömunni og spyr hvort hann geti aðstoðað hana á einhvern hátt? 
 
Mjög vandræðaleg, vonar sú gamla að sölumaðurinn hafi ekki staðið fyrir 
aftan hana einmitt á þessu viðkvæma augnabliki rétt áður, spyr hún, hvað 
kostar svo þetta fallega demantsarmband? 
 
Hann svarar, 
 
Kæra frú, ef að þú prumpaðir bara yfir því að líta á það, áttu eftir að 
skíta upp á bak þegar þú heyrir verðið !! 
 
 
 
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 11:06:48 / Bommi

Já já

Heilladísin sagði við gift par : Þar sem þið hafi verið hamingjusamlega gift í 35 ár ætla ég að veita ykkur hvoru eina ósk.  
Eiginkonan sagði: Ég vil fara í heimsreisu ásamt mínum ástkæra eiginmanni. Heilladísin veifaði sprotanum sínum og AKABRADABRA það birtust tveir farseðlar með það sama.
Nú var komið að manninum og hann hugsaði sig um í smá tíma og sagði svo , tja þetta er nú rómantísk stund en svona tækifæri gefst bara einu sinni á æfinni,............. því miður mín kæra, mín ósk er að eiga konu sem er 30 árum yngri en ég. Konan varð að vonum skúffuð en ósk er ósk.
Heilladísin veifaði töfrasprotanum ....................... og AKABRADABRA..........
maðurinn varð 90 ára með það sama.
Karlmenn eru kannski svolítil svín, en heilladísir................................ eru konur
.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 11:01:27 / Bommi

Eins gott

Það er mikilvægt fyrir karlmenn að muna, að eftir því sem konur eldast verður erfiðara fyrir þær að halda sömu gæðum í húsverkunum og þegar þær voru ungar. Þegar þú tekur eftir þessu, reyndu ekki að æpa á hana. Sumar konur eru ofurviðkvæmar, og það er ekkert verra til en ofurviðkvæm kona.Ég heiti Jón. Ég ætla að segja ykkur hvernig ég tókst á við þetta ástand varðandi konuna mína – hana Siggu.
 Þegar ég settist í helgan stein fyrir nokkrum árum, þurfti Sigga auðvitað að fá sér heildagsvinnu meðfram hlutastarfinu, bæði til þess að auka tekjur heimilisins og halda sparnaði okkar hjóna gangandi. Fljótlega eftir að hún fór að vinna tók ég þó eftir að aldurinn fór að sjást á henni.
Ég kem venjulega heim úr golfi á sama tíma og hún kemur heim úr vinnunni. Þó hún viti hvað ég er svangur, þá þarf hún næstum alltaf að hvíla sig í hálftíma áður en hún fer að elda matinn.
 Ég æpi þó ekki á hana. Í staðinn segi ég henni að taka þann tíma sem hún þarf og vekja mig bara þegar maturinn er kominn á borðið. Ég borða venjulega hádegismat í “Heiðursmannagrillinu” í klúbbhúsinu þannig að það er auðvitað ekkert á dagskránni að fara út að borða. Áður fyrr var Sigga vön að vaska upp um leið og við vorum búin að borða. Nú er hinsvegar ekkert óvenjulegt að það bíði jafnvel í nokkra tíma. Ég geri það sem ég get með því að minna hana á það á nærgætinn hátt að diskarnir þvoi sig ekki sjálfir. Ég veit að hún kann að meta þetta, þar sem það virðist hvetja hana til að klára uppvaskið áður en hún fer að sofa.

Annað einkenni öldrunar er kvörtunaráráttan held ég. Til dæmis heldur hún því fram að það sé erfitt að finna tíma til að greiða reikningana í matartímanum. En strákar, við lofuðum að standa með þeim í blíðu og stríðu, svo ég brosi bara og býð fram hvatningu. Ég segi henni bara að dreifa þessu á tvo til þrjá daga. Þannig þarf hún ekki að flýta sér eins mikið. Ég minni hana líka á að þótt hún missi af matartímanum af og til sé það allt í lagi ( þið vitið hvað ég meina ). Mér finnst reyndar nærgætni einn af mínum betri kostum.
Þegar hún vinnur einfaldari verkefni, virðist hún halda að hún þurfi fleiri hvíldarstundir. Hún varð til dæmis að taka pásu þegar hún var einungis hálfnuð með að slá blettinn. Ég reyni að vera ekki með uppistand. Ég er sanngjarn maður. Ég segi henni að útbúa sér stórt glas af nýpressuðum köldum appelsínusafa og setjast í smástund.
Og þar sem hún er að gera þetta, bið ég hana að blanda einn fyrir mig í leiðinni.

Ég veit að væntanlega lít ég út eins og dýrlingur vegna þess hvernig ég styð hana Siggu mína. Það er ekkert auðvelt að sýna svona mikla tillitssemi. Mörgum karlmönnum finnst það erfitt. Og mörgum finnst það alveg ómögulegt ! Það veit enginn betur en ég hversu pirrandi konur verða þegar þær eldast. En strákar, ef þið hafið lært það af þessarri grein að vera nærgætnari og minna gagnrýnir á konurnar ykkar sem eru að eldast – lít ég svo á að þetta hafi verið þess virði að setja á blað. Við megum ekki gleyma því að við fæddumst á þessa jörð til hjálpa hver öðrum.
Kveðja, Jón Jónsson


Athugasemd ritstjóra:
Jón Jónsson lést skyndilega þann 27. maí sl. af blæðingum í endaþarmi. Samkvæmt lögregluskýrslu fannst Calloway extra löng 50 tommu Big Bertha golfkylfa á kafi í rassgatinu á honum, þannig að aðeins stóðu tíu cm af handfanginu út, og við hliðina var sleggja.
Sigríður konan hans var handtekin og ákærð fyrir morðið. Kviðdómurinn sem eingöngu var skipaður konum var 15 mínútur að komast að niðurstöðu sem var þessi: Við föllumst á það sem fram kemur í vörn Sigríðar að Jón hafi einhvern veginn, án þess að
gera sér grein fyrir því, sest ofan á eigin golfkylfu.








» 0 hafa sagt sína skoðun

27.06.2008 09:35:59 / Bommi

Það var og......

Hjón nokkur fóru til ráðgjafa eftir 20 ára hjónaband. Þegar ráðgjafinn spurði hvað væri að, hóf konan raust sína og var mikið niðri fyrir. Í góða stund hélt hún áfram og kvaðst vera einmanna, afskipt, í ástlausu sambandi og taldi allar raunir sínar í þau 20 ár sem þau hefðu búið saman.

Þegar ráðgjafanum fannst nóg komið stóð hann upp og gekk fram fyrir skifborð sitt, bað konuna að standa upp og kyssti hana innilegum kossi.

Karlinn varð ekki þetta litla hissa og konan settist niður eins og í leiðslu.

Ráðgjafinn sagði: ,,Þetta er það sem konan þín þarf á að halda. Þetta verðurðu að gera að minnsta kosti þrisvar í viku. Getur þú gert það”.

Maðurinn svaraði að bragði: ,,Ja, ég get skutlað henni hingað á mánudögum og miðvikudögun, en á föstudögum er ég upptekinn við að veiða.
 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 59299
Könnun
Ætlar þú á ættarmótið



Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 592 dögum
Ættarmót
Myndasöfn